VELKOMIN TIL
BRASA
BRASA er veitinga- og viðburðastaður á annarri hæð Turnsins við Smáratorg í Kópavogi. Hér sameinast matur og drykkur í hádeginu og framúrskarandi veislu og viðburðarþjónusta á kvöldin.
Hér er allt sem þú þarft
BRASA býður upp á ríflegt hádegishlaðborð og ljúffengan a la carte hádegisseðil þar sem suður-amerískur og asískur innblástur fær að njóta sín.
Við bjóðum einnig upp á fjölbreytt rými með girnilegum veitingum fyrir viðburði, stór sem smá. Hvort sem tilefnið er árshátíð, brúðkaup, ferming, fundur eða fjölskylduborðhald, þá er BRASA rétti staðurinn.
BRASA fyrir veislur
Hjá BRASA leggjum við áherslu á að móta viðburðinn í takt við óskir hvers og eins. Með mat, drykk, fallegu rými og persónulegri þjónustu tryggjum við að upplifun verði einstök.
BRASA rúmar allt að 200 gesti í sæti og allt að 500 gestir standandi og hentar fyrir fjölbreytta viðburði
Taktu fundinn á BRASA
BRASA býður upp á þrjú vel búin fundarrými sem henta bæði litlum og stærri hópum.
Hver salur er útbúinn með skjá og tengimöguleikum – fullkomið fyrir fundi, kynningar og vinnulotur.
Við bjóðum upp á veitinga- og drykkjarþjónustu fyrir fundi, allt frá léttum veitingum til fullbúinna hádegisrétta.
Um Okkur
Að BRASA standa þeir Viktor Örn Andrésson og Hinrik Lárusson, eigendur Sælkerabúðarinnar, Sælkeramatar og Lúx veitinga. Viktor er margverðlaunaður kokkur með áratuga reynslu úr íslensku og alþjóðlegu matarumhverfi. Saman hafa þeir skapað stað sem endurspeglar ástríðu þeirra fyrir hráefnum, gæðum og góðri upplifun.
MEETING ROOMS
BRASA býður upp á ríflegt hádegishlaðborð og ljúffengan hádegisseðil, ásamt fjölbreyttum kvöldverðarseðli þar sem réttirnir njóta suðuramerísks og asískrar innblásturs sem gerir matseðilinn bæði spennandi og fjölbreyttan. Á morgnana er hægt að grípa ferskan kaffibolla í Brasa Deli, og seinna yfir daginn bjóðum við upp á tilbúna rétti sem gestir geta tekið með sér heim eftir vinnu – allt frá kolagrilluðum kjúklingi á spíra til girnilegra kvöldverða. Í Brasa Bar færðu skapandi kokteila, góðan drykk og hlýlega stemningu – fullkomið hvort sem þú ert að njóta í góðra vina hópi eða slaka á eftir annasaman dag.
Við bjóðum einnig upp á fjölbreytt rými fyrir viðburði, stór sem smá. Hvort sem tilefnið er árshátíð, brúðkaup, ferming, fundur eða fjölskylduborðhald, þá er BRASA rétti staðurinn.